16/04/2021

Nýjar sóttvarnaráðstafanir í Alliance Française frá 19. apríl 2021.

Frönskukennsla fyrir börn og unglinga verður áfram á staðnum.

Kennarinn heldur tveggja metra fjarlægð og verður með andlitsgrímu eins og venjulega.

Til þess að veita góða þjónustu verður fjarkennsla í beinni útsendingu aðeins í boði fyrir börn sem:

    • búa utan Reykjavíkur
    • geta óhjákvæmilega sótt námskeið á staðnum (sóttkví, veikindi, ofsaveður, o.s.frv.)

Í öllu falli er nauðsynlegt að láta kennarann vita daginn áður (netföng að nota fyrir neðan).

Frönskukennsla fyrir fullorðna verður aftur á staðnum.

Kennararnir og nemendurnir verða með andlitsgrímu eins og venjulega í kennslustofunni.

Hægt er að velja fjarkennslu í beinni útsendingu ef nemendur vilja frekar vera heima en nauðsynlegt er að láta kennarann vita með tölvupósti daginn áður.

Tuttuga manna fjöldatakmörkun er í gildi á bókasafninu.

Grímuskylda gildir áfram í okkar húsakynnum. Sem fyrr verða börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu.

31/03/2021

Nýju sóttvarnaráðstafanir í Alliance Française gilda til og með 15. apríl.

  • Frönskukennsla fyrir börn til 3 ára heldur áfram á staðnum. Kennarinn og foreldrar eru með andlitsgrímu eins og venjulega og halda tveggja metra fjarlægð eins og hægt er. Kennslan verður í bókasafninu.
  • Frönskukennsla fyrir börn heldur áfram á staðnum. Við hvetjum foreldra og forráðamenn að bíða ekki á bókasafninu ef möguleiki er (hámarksfjöldi 10 manns). Ef það er ekki hægt verður viðkomandi fullorðinn að vera með andlitsgrímu, sótthreinsa hendur og halda 2 metra bili á milli manna. Fullorðið fólk þarf að koma með sínar eigin andlitsgrímur.
  • Frönskukennsla fyrir unglinga heldur áfram á staðnum. Kennarinn og nemendurnir verða með andlitsgrímu eins og venjulega og kennarinn heldur tveggja metra fjarlægð eins og hægt er.
  • Frönskunámskeiðin fyrir fullorðna verða í boði með rafrænum hætti til og með 15. apríl.

24/03/2021

Í kjölfari nýju sóttvarnareglanna verða bara eftirfarandi frönskunámskeið áfram í boði á staðnum. Bara yngstu börnin halda áfram með staðnám (fædd árið 2015 og síðar). Öll önnur námskeið fara fram með rafrænu hætti (við sendum nemendunum tölvupóst).

    • La petite classe – miðvikudaga kl. 16:15-16:45 á bókasafninu
      (Tveggja metra regla og grímunotkun fyrir foreldrana / forráðamenn)
    • La petite classe – fimmtudaga kl. 16:25-16:55 á bókasafninu
      (Tveggja metra regla og grímunotkun fyrir foreldrana / forráðamenn)
    • Maternelle 1 – þriðjudaga kl. 16:15-17:00
      (Kennarinn heldur tveggja metra fjarlægð og verður með andlitsgrímu eins og venjulega)
    • Maternelle 2 – fimmtudaga kl. 17:00-17:45
      (Kennarinn heldur tveggja metra fjarlægð og verður með andlitsgrímu eins og venjulega)
    • Maternelle 3 – miðvikudaga kl. 17:00-17:45
      (Kennarinn heldur tveggja metra fjarlægð og verður með andlitsgrímu eins og venjulega)

Tíu manna fjöldatakmörkun er í gildi á bókasafninu.

Bókasafn Alliance Française verður einungis ætlað nemendunum, foreldrum / forráðamönnum á miðvikudögum kl. 16-17 og á fimmtudögum kl. 16-17 á meðan la petite classe stendur.

Við biðjum foreldra / forráðamenn barna Maternelle 1,2 og 3 að bíða ekki á bókasafninu ef möguleiki er. Ef það er ekki hægt verður viðkomandi fullorðinn að vera með andlitsgrímu, sótthreinsa hendur og halda 2 metra bili á milli manna. Fullorðið fólk þarf að koma með sínar eigin andlitsgrímur.

Takk fyrir skilninginn og samvinnuna í þessari baráttu.

Nándarregla verður áfram tveir metrar og reglur um grímuskyldu eru óbreyttar. Sem fyrr verða börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu en þau falla undir fjölda- og nálægðartakmarkanir.

03/11/2020

Í kjölfari nýju sóttvarnareglanna verða bara eftirfarandi frönskunámskeið áfram í boði á staðnum. Bara yngstu börnin halda áfram með staðnám. Öll önnur námskeið fara fram með rafrænu hætti. Húsakynni Alliance Française verða einungis ætluð nemendunum. Bókasafnið verður lokað á meðan kennslan stendur.
    • La petite classe – fimmtudaga kl. 16:25-16:55
      • (Tveggja metra regla og grímunotkun fyrir foreldrana)
    • Maternelle 1 – þriðjudaga kl. 16:15-17:00
      • (Kennarinn heldur tveggja metra fjarlægð og verður með grímu eins og venjulega)
    • Maternelle 2 – fimmtudaga kl. 17:00-17:45
      • (Kennarinn heldur tveggja metra fjarlægð og verður með grímu eins og venjulega)
    • Maternelle 3 – miðvikudaga kl. 17:00-17:45
      • (Kennarinn heldur tveggja metra fjarlægð og verður með grímu eins og venjulega)
    • Classe 2.1 – mánudaga kl. 17-18
      • (Kennarinn heldur tveggja metra fjarlægð og verður með grímu eins og venjulega. 2 metra reglan gildir líka fyrir nemendurna)
    • Myndlist á frönsku – föstudaga kl. 15:30-17:30
      • (Kennarinn heldur tveggja metra fjarlægð og verður með grímu eins og venjulega. 2 metra reglan gildir líka fyrir nemendurna. Börnin sem eru 10 ára eða eldri þúrfa að vera með grímu)

Við biðjum ykkur að bíða ekki á bókasafninu ef möguleiki er (nema fyrir la petite classe). Ef það er ekki hægt verður viðkomandi fullorðinn að vera með andlitsgrímu, sótthreinsa hendur og halda 2 metra bili á milli manna. Fullorðið fólk þarf að koma með sínar eigin andlitsgrímur.

Takk fyrir skilninginn og samvinnuna.

Skylt er að nota hlífðargrímur í Alliance Française í Reykjavík fyrir einstaklinga eldri en 10 ára.
Börn fædd 2011 og yngri eru undanþegin grímuskyldu.

07/10/2020

Í ljósi útbreiðslu kórónaveirunnar á höfuðborgsvæðinu síðustu daga höfum við ákveðið að halda starfsemi okkar fyrir fullorðna, unglinga og sum börn á netinu til og með 20. október. Þessi ákvörðun var tekin með því markmiði að vernda nemendurna, foreldrana og starfsfólk Alliance Française. Tímasetningar námskeiðanna breytast ekki, þau bara færast yfir á netið.

Ástandið verður endurmetið eftir tvær vikur.

Maternelle tímarnir og nokkuð frönskunámskeið fyrir börn verða áfram kennd á staðnum. Foreldrar fá tölvupóst. Við biðjum foreldra barna eldri en 5 ára að bíða ekki á bókasafninu ef möguleiki er. Ef það er ekki hægt verður viðkomandi fullorðinn að vera með andlitsgrímu, sótthreinsa vel hendur og halda 2 metra bili á milli manna. Fólk þarf að koma með sínar eigin andlitsgrímur.

Við höfum framlengt allt bókasafnsefni til 20. október.

Farið varlega á meðan þetta ástand stendur. Við þökkum ykkur fyrir skilninginn og samvinnuna í þessari baráttu.

Kæru foreldrar, kæru nemendur, við vonum að sjá ykkur öll aftur fljótlega. Góðar kveðjur.

Starfsfólk Alliance Française í Reykjavík.