Alliance Française býður upp á tónlistarstund á frönsku fyrir yngstu börnin (frá 0 til 5 ára) í tilefni af 30 ára afmælis Samtakana Móðurmáls .
Næstkomandi laugardag 1. júní kl. 12-14 stendur félagið Móðurmál fyrir veislu í tilefni af 30 ára afmælinu sínu!
Af þessu tilefni mun Alliance Française bjóða upp á tónlistarstund á frönsku með Antoine kl. 13. Verið þið velkomin að syngja barnavísur á frönsku með okkur!
Á dagskránni:
-
- Afmæliskaka, pylsur, kleinur og fleira
- Lifandi tónlist (Múltíkúltíkórinn & Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts)
- Götuleikir, hoppukastali, krítarkrot, photobooth (fótóbúþ), andlitsmálning og margt fleira
- Saga Móðurmáls & skemmtilegar minningar úr 30 ára starfi.
Viðburðurinn verður í Mjódd.