Þátttökusýning "Les Situées" undir stjórn Aurélie Raidron

Fimm stelpur tóku þátt í apríl í þremur listasmiðjum með listakonunni Aurélie Raidron. Við erum stolt að sýna afrakstrinum úr listsköpunarsmiðjunni í Alliance Française frá 1. til og með 18. maí.

Sýningin heitir “Les Situées” og opnunin verður miðvikudaginn 1. maí kl. 16 í Alliance Française.

Þetta er þátttökusýning sem býður manni að efast um eigin skilningarvit í gegnum sjónarhorn barna. Á þessari listasýningu fögnum við taugafjölbreytileika!

Sýningin er eftir Andreu, Emilie, Evu Rós, Heklu Rós og Monique Fríðu.

Allir velkomnir.

  • frá 1. til og með 18. maí 2024
  • alla virka daga frá kl. 13 til kl. 18 og á laugardögum kl. 10-12
  • Alliance Française, Tryggvagötu 8