Talnámskeið og talþjálfun

Talnámskeiðið hefur það markmið að efla samræður, framburð á frönsku með því að nota hljóðfræði, hljómfall og málfræði í talmáli. Talnámskeiðið er líka að sjálfsögðu tækifæri til að efla frönskukunnáttu sína í talmáli í gegnum samræður. Ýmis þemu verða í boði: fréttir, þjóðfélag, menning Frakklands.

Námskeiðið fer fram í tvo klukkutíma einu sinni í hverri viku.
6 vikur af námskeiðum (12 klst.)

Þema

Námskeiðið byrjar á að skilgreina þessi þrjú hugtök: “intox”, “info” og “désinformation”.

Nemendur skoða svo menningarleg, pólitísk og samfélagsleg áhrif þessara hugtaka í gegnum mismunandi dæmi í frönskum fjölmiðlum í dag. Einnig verður skoðað hvaða lausnir koma til greina til að minnka áhrif þessa fyrirbæris.

Markmið

    • að nota málfræði í talmáli og bæta orðaforða í frönsku
    • að ræða á frönsku um ýmisleg efni um Frakkland
    • að kynnast mörgum og mismunandi fjölmiðlum í Frakklandi í dag

Kennsluefni

  • Skriffæri (staðnám)
  • Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur. (fjarkennsla)

Staðnám með fjarkennsku í beinni útsendingu

Býrð þú fyrir utan höfuðborgarsvæðið? Ertu oft á ferðalagi? Ertu í sóttkví? Er óveður? Viltu frekar læra heima?
Í dag skiptir sveigjanleiki í námi miklu máli. Við bjóðum nú upp á nýja lausn sem gefur nemendum kost á að taka þátt í frönskunámskeiði hvar sem þeir eru. Nemendur geta nú valið á milli tveggja valkosta fyrir hvern tíma í námskeiðinu: að læra á staðnum eða að vera í fjarkennslu í beinni. Frekari upplýsingar hér.

Frestun og viðurkenning

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
  • Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.

Styrkir til náms og greiðslur

    • Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
    • Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða í heimabanka.

Dagatal

dagataladultes
  • DAGSETNING: frá 30. mars til 19. maí 2022 – 6 vikur (12 klst.)
  • TÍMASETNING: fimmtudaga kl. 18:15-20:15
  • ALMENNT VERÐ: 25.680 kr. (22.680 kr. fyrir 15. mars 2022)
  • VERÐ MEÐ AFSLÆTTI*: 22.680 kr. (19.680 kr. fyrir 15. mars 2022)
    *
    skráningarskilmálar hér.
essai1

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
Cq9J1WfVUAAglhb

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
ONU6RW0

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
Education-OpportunitySmall

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar