Litli prinsinn: saga um vináttu

Froskur útgáfa gefur út þýðingu teiknimyndabókarinnar „Litli prinsinn“ eftir Joann Sfar.

Af þessu tilefni heldur Alliance Française í samstarfi við franska sendiráðið sýningu á verkum úr bókinni á íslensku og frönsku. Þema sýningarinnar er hugtakið vinátta. Eftir að hafa skoðað sýninguna býðst gestum að svara spurningunni: „Hvað táknar vinátta fyrir þér?“ og líma svarið á vegginn.

Á meðan sýningunni stendur verður bókin til sölu í afgreiðslu Alliance Française og hún kostar 3000 krónur. Aðeins er hægt að greiða með millifærslu.

  • frá 7. til og með 26. mars 2022
  • á virkum dögum kl. 13-18 og á laugardögum kl. 10-12
  • Alliance Française, Tryggvagötu 8, 2. hæð