Framleiðsla hljóðfæra

Á þessari vinnustofu munu börnin uppgötva heim hljóðfæra, þar á meðal slagverks-, strengja- og blásturshljóðfæri. Eftir að hafa uppgötvað eiginleika þeirra munu þau búa til sín eigin hljóðfæri úr mismunandi efniviði. Í lok vikunnar verður foreldrum boðið að mæta á tónlistaratriði.

Dagsetningar og tímasetningar

Vinnustofur fara fram frá 9:00 til hádegis daglega.

Það stendur líka til boða að borða nesti milli hádegis og 13:00 og horfa svo á bíómynd eða fara út (eftir veðri) til 14:30.

Upplýsingar

    • Aldur: 6 til 10 ára
    • Lágmark og hámark þátttakenda : 4 til 8 þátttakendur
    • Smá hressing verður í boði en börnin þurfa að koma með hádegisnesti ef þau borða í Alliance í hádeginu.
    • Það er ekki skylda að kunna frönsku til að taka þátt. Markmiðið er að uppgötva tungumál í skemmtilegu umhverfi.
  • DAGSETNINGAR: frá 26. til 30. júní kl. 9:00-14:30
  • VERÐ: 30.500 kr. (27.500 kr. fyrir 18. maí)

    • Systkinaafsláttur: -3.000 kr. af gjaldi annars.
    • Boðið er upp á endurgreiðslu á hluta fjárhæðarinnar fyrir félagsmenn félags foreldra frönskumælandi barna. Vinsamlega hafið samband við foreldrar.franskra.barna@gmail.com fyrir frekari upplýsingar.