Skráningu í stuttmyndakeppni Sólveigar Anspach 2019 eru nú lokið. Umsjónarmenn fengu 72 umsóknir leikstjóra frá Kanada, Íslandi, Frakklandi, Mali, Senegal og Austur-Kongó.

27 stuttmyndir hafa verið valdar. Dómnefndin mun velja þrjá sigurvegara.

Dómnefnt 2019:

Formaður dómnefndar: Sjón, rithöfundur

  • Dagur Kári, kvikmyndaleikstjóri og formaður Samtaka kvikmyndaleikstjóra (SKL)
  • Helga Rakel Rafnsdóttir, kvikmyndaleikstjóri og formaður WIFT (Women in Film and Television)
  • Isold Uggadóttir, kvikmyndaleikstjóri
  • Valérie Leroy, kvikmyndaleikstjóri (Verðlaunahafi stuttmyndakeppni Sólveigar Anspach 2017)

Stuttmyndirnar, sem dómnefnd velur, verða sýndar fimmtudaginn 14. febrúar 2019 í Háskólabíói í Reykjavík sem hluti af frönsku kvikmyndahátíðinni sem Alliance Française í Reykjavík og sendiráð Frakklands á Íslandi standa að.