NÚ ER OPIРfyrir skráningar í stuttmyndakeppni Sólveigar Anspach 2018

Lokað verður fyrir skráningar þann 31. október 2017

 

Skilyrði fyrir þátttöku:

  • Að kona sé leikstjóri stuttmyndarinnar og hún hafi ekki haft framleiðslufyrirtæki á bak við sig í fleiri en þremur myndum.
  • Þjóðerni leikstjóra: Þátttakandi sé með ríkisfang eða búsetu í frönskumælandi landi, eða sé íslensk eða búsett á Íslandi.
  • Tegund /þema: Öll þemu leyfð.
  • Myndin sé að hámarki 17 mínútna löng, að meðtöldum kreditlistum.
  • Að lokið hafi verið við stuttmyndina eftir 1. janúar 2016.
  • Að myndin sé á frönsku eða íslensku. Það er skilyrði að hún sé með enskum texta.

 

Umsóknir hér

Reglur um stuttmyndakeppnina eru hér.

Stuttmyndirnar, sem dómnefnd velur, verða sýndar í Háskólabíói sem hluti af Frönsku kvikmyndahátíðinni.

Netfang: sashortfilms@af.is