Smá atriði Grænlands

Titartakkat mikisut kalaallit nunaanneersut

 

Minnisbækur á Norðurheimskautinu eftir Bénédicte Klène

  • Sýning í Alliance Française í Reykjavík, 9. til 14. október 2019
  • Opnun 9. október kl. 18 (léttvínsglas og snarl)

 

Sigurvegari þriðju útgáfu «Artists in Arctic», Bénédicte Klène dvaldi síðasta vetur á Le Manguier sem er rannsóknarskip sem hefur vetursetu í hafísnum við Vestur-Grænland. Skipið var staðsett í vík nálægt Akunnaaq þorpinu (68°44’N – 52°21’W).

Þessi sýning býður upp á að uppgötva Grænland í gegnum skissur sem sýna einstaka staði og andlitsmyndir af fólki sem Bénédicte hitti í dvölinni sinni. Þessi sýning er leið til að sýna veikleika ákveðins heims sem er erfitt að varðveita og til að gera tilkall til neyðarástandsins vegna loftlagsbreytinga.

Með atbeina sendiráðs Frakklands á Íslandi, Institut Français (Paris), Rennes Metropole og Rennes, Saint-Grégoire, Vezin-le-Coquet borganna.

Sýningin verður í boði í tilefni af Alþjóðaþingi Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle

 

Bénédicte Klène er frönsk og fjölhæf listakona sem býr í Bretaníu í Frakklandi. Hún vinnur þar sem hún fær innblástur til að teikna. Pappír og teikning er hjarta/kjarni listaverka hennar. Hún fylgist með öllu og skisssr öll litlu atriði lífsins í sömu andrá og hún sér þau. Hún tekur og kemur með víðmyndir frá ferðum sínum og prentar eintök í takmörkuðu upplagi. Listaverk hennar hafa verið sýnt í mörgum sýningum og í ýmsum löndum í Evrópu.

 

www.benedicteklene.com

Facebook.com/LesPetitsRiensdeBenedicteKlene

Instagram : @benedicteklene

Opnun sýningarinnar eftir Bénédicte Klène, 9. október 2019, í viðurvist Kim Kielsen, forsætisráðherra Grænlands, Ségolène Royal, sendiherra Frakklands gagnvart heimskautunum, Graham Paul, sendiherra Frakklands á Íslandi og Guðlaugar M Jakobsdóttur, forseta Alliance Française í Reykjavík.