Opnun á sýningunni Shapeless Vibrations.
Laugardaginn 4. júlí milli 16-19.
Sýning eftir listakonurnar Claire Paugam and Valgerður Ýr Magnúsdóttir.

ATH! Breyttir opnunartímar Midpunkt í Júlí.
Opið fimmtudaga og föstudaga milli 14-17.

Shapeless Vibrations er samsýning listakvennanna Claire Paugam og Valgerðar Ýrar Magnúsdóttur. Innsetning þeirra skoðar formleysu, viðfangsefni sem þær báðar kanna í gegnum listsköpun sína.

Að segja að hlutur sé formlaus getur virkað þversagnakennt, að hlutur hafi ekki form þegar allir hlutir hafa form. Hvers vegna að tala þá um formleysu? Hið formlausa er síbreytilegt, óskýrt og erfitt að fanga. Allt sem lifir mun óhjákvæmilega rýrna og missa form sitt. Formleysa er inngangur inn í hið óþekkta, hlið á umhverfi okkar sem forðast að fara eftir reglum. Við teljum að með því að vinna með formleysu sé okkur kleift að endurskoða og enduruppgötva umhverfi okkar. Í stað þess að leitast við fullkomnun og fylgja rökhugsun um hvernig hlutir passa saman er það spennandi að kanna hvernig ólíkir hlutir úr umhverfi okkar mætast á óvæntan hátt.