Búum til jólablað!

Hefur þú áhuga á blaðamennsku? Langar þig að taka viðtal við jólasveininn? Kanntu að tala um veðrið? Viltu skrifa sögur? Hvað um að deila uppskrift og skrifa hana? Það er nú hægt með því að taka þátt í ritsmiðjunni í Alliance Française!

Á þessari ritsmiðju mun það snúast um að finna titil, búa til kafla, skrifa stuttar greinar, finna upp sögu og myndskreyta allt.

Afraksturinn verður jólablað sem verður byggt upp í kringum aðalsöguna sem þátttakendur verða beðnir um að finna upp. Efni þessarar sögu verður: „Þegar jólin tvö mætast“. Franski jólasveinninn kemur í heimsókn til Íslands fyrir jólin til að hitta jólasveinana og finna nýjar hugmyndir og gjafir fyrir börnin í Frakklandi, auk þess að færa þeim snjó í jólafríi. Íslensku jólasveinarnir taka vel á móti honum, láta hann smakka hátíðlega íslenska rétti (sem stundum koma á óvart fyrir franska jólasveininn), sýna honum veðrið (með stormi og snjó o.s.frv.), þeir deila hefðum og gjafahugmyndum.

Þessi vinnustofa fer fram þrisvar sinnum fyrir jól (og verður framlengd árið 2025!)

Upplýsingar

    • Aldur: 8 til 13 ára
    • Lágmark og hámark þátttakenda : 4 til 8 þátttakendur
  • LENGD: frá 28. nóvember til og með 12. desember 2024
  • DAGSETNINGAR: fimmtudaga kl. 16-18
  • VERÐ: 17.500 kr. (6 klst. + kennsluefni)
SKRÁNING