Ó, hve hljótt

Tónlist eins og við sjáum hana: myndlist og kvikmyndir.

Sýningin samanstendur af völdum kvikmyndum, hljóð- og vídeóverkum eftir bæði íslenska og alþjóðlega samtímalistamenn. Þó að verkin kunni að vera af ólíkum toga, í stíl eða efnistökum, eiga þau það sammerkt að bera með sér yfirvegaða kyrrð og djúpstæða friðsæld, líkt og sýningartitillinn gefur til kynna.

Leiðarljós sýningarinnar er að veita innsýn í samruna tónlistar og kvikmynda í listsköpun samtímans. Hvort sem unnið er með tónlist, söng, upplestur eða hljóð, felur hljómur verkanna í sér leik að tungumáli, tali og hlustun. Listamennirnir skapa hljóðinnsetningar sem eru settar upp sem rými upplifunar, tónlist eins og við sjáum hana, hvort sem um er að ræða óm frá lagi, skerandi hávaða eða tónlist. Önnur verk byggja á handriti að óhlutbundinni hljóðmynd.

Verk listamannanna Doug Aitken, Charles de Meaux, Dominique Gonzalez-Foerster, Pierre Huyghe, Ange Leccia, Romain Kronenberg, Jean-Luc Vilmouth og Lornu Simpson, úr safneign CNAP – miðstöðvar myndlistar í Frakklandi, bera vitni um auðgi og margbreytileika franskrar kvikmyndasköpunar. Þau kallast á við verk eftir þrjá af fremstu vídeólistamönnum Íslands, þau Steinu, Doddu Maggý og Sigurð Guðjónsson.

 

Texti sýningarstjóra, Pascale Cassagnau:

Hliðstæðar og sameiginlegar sögur nútíma- og samtímalistar, að meðtöldum ljósmyndum, kvikmyndum, myndböndum og sjónvarpi, hafa orðið stöðugt samtvinnaðri enda krefjast tímarnir þess að listin komi fram fyrir auga myndavélarinnar. Við getum í því sambandi rifjað upp þýðingarmikið stefnumót kvikmyndar og myndlistar sem komst á fyrir tilstilli heimildarmyndar um nútímalist, „The Responsive Eye“, sem leikstjórinn Brian de Palma gerði árið 1966.

Undirbúningur kvikmyndadagskrár um listsköpun samtímans í víðum skilningi snýst um að stofna til kynna við viðfangsefni, heima, og svið tjáningar með það að markmiði að beina athyglinni að listaverkinu. Þegar samband tónlistar og kvikmyndar er skoðað með þetta í huga opnast auðugur heimur einstakra verka.

Hvort sem unnið er með tónlist, söng, upplestur eða hljóð, felur hljómur verkanna í sér leik að tungumáli, tali og hlustun, sem Roland Barthes hefur oft bent á að sé bæði flókinn og hárfínn. Listamennirnir skapa hljóðinnsetningar sem eru settar upp sem rými upp lifunar: ómur frá lagi, óp, skerandi óbærilegur hávaði eða tónlist. Önnur verk byggja á handriti að óhlutbundinni hljóðmynd.

 

Listamenn:

Doug Aitken, Charles de Meaux, Dodda Maggý, Pierre Huyghe, Romain Kronenberg, Ange Leccia & Dominique Gonzalez-Foerster, Sigurður Guðjónsson, Lorna Simpson, Steina, Jean-Luc Vilmouth.

 

Sýningarstjórn:

Pascale Cassagnau, CNAP & Gústav Geir Bollason, Verksmiðjan á Hjalteyri. Með stuðningi  Berg Contemporary, Reykjavík.
Gerðarsafn – Listasafn Kópavogs, 12.01 – 31.03 2019.

Verksmiðjan Hjalteyri, 24.7.-9.9.2018.

Umsjón sýningar í Gerðarsafni í samvinnu við sýningarstjóra:

Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, safnstjóri & Klara Þórhallsdóttir, verkefnastjóri.

Með stuðningi Franska sendiráðsins í Reykjavík / Ambassade de France à Reykjavik.

Mynd: Romain Kronenberg,

Eigra um og hverfa / To Walk Then Disappear (Marcher puis disparaître),

2013, CNAP.

ambassade.jpg    Logo_Centre_national_des_arts_plastiques.svg.png