Hver var Napoleon? Hver er Níels? Níels er Napoleon.
„Níels er Napleon“ er lífleg leiksýning og óhefðbundin vínsmökkun. Láttu leiða þig í töfrandi ferðalag um söguslóðir Napóleons þar sem þú kynnist keisaranum í gegnum keiminn. Tres amusant og tres charmant leiksýning úr smiðju Gunnars S. Jóhannessonar í meðförum Níelsar.
Níels Girerd er hálfur frakki sem þráir það eitt að verða heill. Í þessari bráðfyndnu sýningu setur Níels sig í hlutverk franskasta manns sögunnar, sem var þó ekki franskur. Níels túlkar fátæka föðurlandssinnan, ástríðufulla elskhugann, hershöfðingjann, keisarann og útlagann. Níels Thibaud Girerd er Napoleon
Við finnum keiminn af hafi, púðri, löðrungi, kynlífi og Korsíku í gegnum vín keisarans. Í þessari vínsmökkun fá áhorfendur að bragða á ljúffengu frönsku víni og heyra fánýttan fróðleik um konungafólk, byltingarsinna og samferðafólk Napoleons í þessari veglegu vínsmökkun.
Eftir sýningu býður franska sendiráðið óvæntan glaðning.
„Si vous escomptez avoir du succès dans le monde, promettez tout, ne donnez rien.“ (Ef þér viljið ná árangri í þessum heimi, skuluð þér öllu lofa og ekkert efna.) – Napóleon I, keisari Frakka.
Staðsetning og tímasetningar
-
-
📅 Dagsetning: fimmtudagur 20. mars – húsið opnar 19:30 og sýning hefst kl 20:00
-
📍 Staðsetning: Hannesarholt, Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland
-
🎟️ Miðar hér.
-