Þetta frönskunámskeið fyrir byrjendur er ætlað börnum frá 6 til 9 ára aldurs. Þau eru byrjuð í grunnskóla á Íslandi (þau eru byrjuð að læra að lesa og að skrifa íslensku í skólanum á Íslandi). Þetta námskeið er fyrir algjöra byrjendur í frönsku (A1.1).

Nemendur læra að skilja og nota auðveldar setningar og orðaforða um daglegt líf. Nemendurnir eru hvattir að tjá sig á frönsku í námskeiðinu samkvæmt ýmsum þemum: daglegt líf, sögur, tónlist og leikir.

Þetta námskeið býður nemendum upp á mörg þroskandi og skemmtileg verkefni sem efla námið í frönsku með því að skrifa, að lesa, að tala og að skilja talmál.

Að loknu námskeiðinu stendur börnum til boða að taka DELF Prim A1.1 prófið.

Ein klukkustund í hverri viku (35 vikur).

Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið. Hámark: 6 nemendur.

Frestun og forföll

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annanna.

Styrkir

Munið að athuga með námsskeiðsstyrki hjá Reykjavíkurborg og Kópavogi.

Skóladagatal

  • DAGSETNING: frá 9. september 2020 til 2. júní 2021
  • TÍMASETNING: ​miðvikudaga kl. 15:30 – 16:30
  • VERÐ: 65.630 kr. (62.344 kr. fyrir 31. ágúst 2020)
essai1

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
Cq9J1WfVUAAglhb

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
ONU6RW0

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
Education-OpportunitySmall

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar