Námskeið 3 er ætlað börnum frá 9 til 12 ára aldurs sem hafa tekið námskeið 2 (A1) og sem eru ekki byrjendur lengur (hafið samband við okkur til að fá frönskukunnáttu barns metið og til að fá ráðgjöf). Þetta er millistig í frönsku (A2)

Nemendur efla kunnáttu sína í frönsku sem skrifmál með því að skrifa auðveldar setningar (að skrifa póstkort, bréf til vina, skilaboð) um daglegt líf og um persónulega reynslu sína. Þeir læra að tala um tilfinningar, drauma þeirra, að spyrja og að gefa ráð á frönsku.

Þetta námskeið býður nemendunum upp á mörg þroskandi og skemmtileg verkefni sem efla námið í frönsku með því að skrifa, að lesa, að tala og að skilja talmál.

Kennslubók: Super Max 2 (Hachette) fyrri hluti.

Að loknu námskeiðinu stendur börnum til boða að taka DELF Prim A2 prófið

Ein klukkustund í hverri viku.

Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið. Hámark: 6 nemendur.

Frestun og forföll

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í vikunni sem byrjar 3. desember 2018.

Styrkir

Munið að athuga með námsskeiðsstyrki hjá Reykjavíkurborg og Kópavogi.

  • DAGSETNING: frá 3. september til 7. júní – skóladagatal hér (frídagar og frí)
  • TÍMASETNING: ​mánudaga kl. 17:00 – 18:00
  • VERÐ: 57.000 kr. (51.500 kr. fyrir 31. ágúst)
essai1

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
Cq9J1WfVUAAglhb

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
ONU6RW0

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
Education-OpportunitySmall

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar