Með forsjá fer…

eftir Xavier Legrand

Drama/Spennumynd, enskur texti.
2017, 93 mín.

Leikarar: Léa Drucker, Denis Ménochet.

Dómari í forsjármáli telur traðkað á rétti föður og dæmir foreldrunum sameiginlegt forræði yfir Julien. Hann er milli steins og sleggju og ætlar af öllum mætti að varna því að allt fari á versta veg.

Þetta er fyrsta mynd Xaviers Legrands í fullri lengd og hann beitir hér aðferðum spennumyndanna til að sýna hvernig fjölskylda sundrast. Myndin hlaut verðlaun fyrir bestu frumraun á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum 2017

„Yfirþyrmandi kvikmynd um viðkvæmt efni“ (L’Obs).

SÝNINGARTÍMAR OG MIÐASALA
TIL BAKA