Franska á ferðalagi fyrir byrjendur í eina viku

Þetta þemanámskeið er ætlað þeim sem vilja ferðast í Frakklandi. Markmiðið er að auðvelda dvölina með því að læra frönsku sem er töluð daglega. Einnig verður farið yfir helstu atriði í franskri menningu.

Ferðataskan þín til að fara til Frakklands er tilbúin! Þú kannt nú þegar nokkur orð á frönsku en þú vilt kunna fleiri gagnlegar setningar til að ferðast á einfaldan hátt. Á þessu námskeiði lærir þú að bjarga þér á ferðalagi í frönskumælandi löndum.

Markmið námskeiðsins væri að læra hvernig á að komast af í Frakklandi sem ferðamaður og byrjandi: spyrja um leið, gera lítil innkaup í verslunum, bóka hótelherbergi, panta á veitingastaði, geta átt grunnsamtal.

Föstudaginn verður boðið upp á léttvínsglas til þess að fagna lok vikunnar.

Hefur þú áhuga á að ferðast á Korsíku?

Þetta námskeið er í boði í tengslum við ferðina til Korsíku á vegum Insula Serena frá 9. til 17. maí 2023. Frekari upplýsingar.

Kennsluefni

  • Við biðjum nemendurna að koma með skriffæri.

Styrkir til náms og greisðlur

Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.

Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða í heimabanka.

  • DAGSETNING: frá 27. til og með 31. mars 2023 (10 klst.)
  • TÍMASETNING: kl. 18:15-20:15 alla daga vikunnar
  • VERÐ: 23.100 kr.