Frumdrög að draumi er safn ljóða eftir franskar skáldkonur sem Þór Stefánsson hefur valið og þýtt.

Í bókinni eru ljóð eftir ríflega 50 konur sem allar sendu Þór verk sín, oftast óbirt. Hér er þannig á ferðinni sýnishorn ljóða eftir franskar skáldkonur á líðandi stund.

Konurnar koma víða að frá Frakklandi.

Ásta Ingibjartsdóttir og Sólveig Simha flytja ljóð nokkurra þessara skáldkvenna í bókasafni Alliance française fimmtudaginn 27. október kl. 20:00.

Öll ljóðin verða flutt á frönsku og íslensku.

Ljóðskáldakvöldið verður fimmtudaginn 27. október kl. 20.00.

Allir velkomnir.