Ljóðakvöld – Chez nous ׀ Heima

Þór Stefánsson og Ásta Ingibjartsdóttir
  • Miðvikudaginn 20. mars kl. 19
  • Léttvínsglas í boði
  • Frír aðgangur (takmörkuð sæti).

Í tilefni af hátíð franskrar tungu 2019 býður Alliance Française í Reykjavík upp á kynningu á ljóðum Þórs Stefánssonar í frönskum þýðingum miðvikudaginn 20. mars kl. 19. Fjórar ljóðabækur Þórs hafa komið út á frönsku, nú síðast Chez nous – Heima. Auk þess hafa ljóð hans birst í safnritum.

Lesin verða sýnishorn út öllum bókunum. Ásta Ingibjartsdóttir les ljóðin á frönsku en skáldið mun flytja textann á íslensku.

Dagskráin tekur um það bil klukkustund.