Listin talar tungum - leiðsögn á frönsku á Kjarvalsstöðum

Florence Courtois, Erasmus starfsnemi í menningarstjórnun á Listasafn Reykjavíkur, verður með leiðsögn á frönsku um sýninguna Kjarval og 20. öldin. Þegar nútíminn lagði að.

Kjarval var fæddur árið 1885 og lést árið 1972. Himinn og haf eru á milli þessara tímapunkta í menningarsögunni og samfélaginu öllu á heimsvísu. Þetta var tími mikilla félagslegra umbreytinga, iðnvæðingar, þéttbýlisþróunar og tækniframfara. Íslenskir listamenn fóru utan til náms og komu heim með nýjar hugmyndir, innblásnir af þeim straumum og stefnum sem þeir kynntust í Evrópu.

Á sýningunni getur að líta myndlistarverk íslenskra listamanna frá um sex áratuga skeiði eftir aldamótin 1900. Verkin spanna það tímabil sem listmálarinn Jóhannes S. Kjarval var starfandi.

Viðburðurinn er í samstarfi við Alliance Française.

  • sunnudaginn 10. mars 2024
  • kl. 13
  • Kjarvalsstöðum