Láttu börnin þín uppgötva matvæli og matargerð á frönsku í gegnum klippimyndalist!

Klippimynd (e. Collage) er aðferð í myndlist sem felst í að raða saman hlutum eins og úrklippum úr dagblöðum og öðru tilfallandi á myndflötinn, líma það saman og jafnvel mála síðan, til að mynda nýtt samhengi á milli hlutanna.

Þátttakendur munu útbúa klippimyndir með listakonunni Estelle Pollaert. Þema listasmiðjunnar verður „Matargerð og matvæli“.

Hægt er að láta börnin koma með nesti, borða á staðnum og horfa á teiknimynd kl. 13-14:30 (valkvætt og frítt).

Markmið

    • að uppgötva nýjan orðaforða í gegnum list
    • að nota frönsku til að þróa sköpunargáfu
    • að vinna saman í hópi

Upplýsingar

    • Aldur: 5 til 11 ára
    • Lágmark og hámark þátttakenda : 4 til 8 þátttakendur
    • Smá hressing verður í boði.
    • Smá hressing verður í boði en börnin þurfa að koma með hádegisnesti ef þau horfa á teiknimyndina kl. 13.
    • Það er ekki skylda að vera frönskumælandi til að taka þátt. Smiðjan fer fram á frönsku en hægt er að þýða handa börnunum sem kunna ekki frönsku.

Aðrar listasmiðjur í boði

  • DAGSETNINGAR: fimmtudaginn 24. október kl. 9:30-12:30
  • VERÐ: 9.000 kr fyrir eina smiðju / 15.000 kr fyrir tvær smiðjur / 21.000 kr. fyrir þrjár smiðjur
SKRÁNING