Á klassíska bíókvöldinu býðst ykkur að sjá tvö meistaraverk franskra kvikmynda, verk sem eru í hávegum höfð út um allan heim. Myndirnar hylla ákveðna æskuímynd, frjálsa og ósvífna, eins og lýst er í persónum og atburðum sem nú eru orðnar að þjóðsögum.

MIÐASALA

Núll fyrir hegðun

Dramatísk gamanmynd / Enskur texti.

Lengd: 41 mín

Leikstjórn: Jean Vigo

 

Þrír nemendur í heimavistarskóla uppi í sveit rísa upp og efna til uppþots.

Þetta meistaraverk Jeans Vigos var talið hallt undir anarkisma og bannað til 1946 en er dýrlegur lofsöngur til æskunnar og frelsisins.

400 högg

Dramatísk gamanmynd / Enskur texti.

Lengd: 99 mín

Leikstjórn: François Truffaut

 

Antoine á stormasöm unglingsár. Skemmtilegast finnst honum að fremja óknytti.
Hann lýgur að foreldrum sínum, hann stelur og stingur af. Dag nokkurn kemur
lögreglan til skjalanna.

Þetta er fyrsta kvikmynd Truffauts og hlaut leikstjórnarverðlaunin í Cannes árið 1959.

TIL BAKA