Kennedysyllan

eftir Dominique Cabrera

Drama, enskur texti.
Eftir samnefndri skáldsögu Maylis de Kerangal.
2016, 94 mín.

Leikarar: Lola Créton, Aïssa Maïga, Moussa Maaskri.

Stúdentsprófin eru fram undan hjá Suzanne, stúlku úr góðri fjölskyldu. Hún slæst í hóp með ungu fólki úr fátækrahverfum Marseille sem mana hvert annað til að stinga sér til sunds fram af syllu við veginn um Kennedyklett.

Strákar og stelpur steypa sér í fagurblátt Miðjarðarhafið, sleppa af sér hömlum, hætta öllu til að lifa hraðar: „Kröftug mynd, úthugsuð og lostakennd um þessa örskotsstund þegar allt er hægt: unglingsárin“ (Les Fiches du Cinéma).

Sýningin er ókeypis.

Dagsetning: þriðjudagur 12. febrúar kl. 17:45

Staðsetning: Veröld – hús Vigdísar

TIL BAKA