Alliance Française í Reykjavík býður ykkur öllum að enda árið með jólastemningu fyrir alla laugardaginn 8. desember 2018 kl. 14-17.
Alliance Française býður upp á jólaglögg, heitt súkkulaði og safa. Til að gera þessa dagstund enn skemmtilegri, þætti okkur vænt um ef þau ykkar sem geta og hafa tíma til „að leggja hönd á hræru“, kæmuð með eitthvað smáræði með ykkur.
Sýning verkefna nemanda námskeiðsins „Myndlist á frönsku“ sem Emmanuelle Hiron kennir verður á jólagleðinni.
Það er okkur sönn ánægja að bjóða ykkur upp á meðfylgjandi dagskrá fyrir börn:
- kl. 15 – Jólasögustund. Jessica Devergnies-Wastraete les.
- kl. 16 – Sýning stuttmyndarinnar „La bûche de Noël“ eftir Stéphane Aubier og Vincent Patar (frá 6 ára).
Við hlökkum til að sjá ykkur! Hikið ekki við að deila viðburðinum í kringum ykkur.