Franska á ferðalagi fyrir byrjendur

Hefur þú áhuga á að uppgötva Frakkland? Ætlar þú að fara í Ólympíuleikana í sumar?

Þetta þemanámskeið er ætlað þeim sem vilja ferðast í frönskumælandi löndum. Markmiðið er að auðvelda dvölina með því að læra frönsku sem er töluð daglega. Einnig verður farið yfir helstu atriði í franskri menningu.

Ferðataskan þín til að fara til Frakklands er tilbúin! Þú kannt nú þegar nokkur orð á frönsku en þú vilt kunna fleiri gagnlegar setningar til að ferðast á einfaldan hátt. Á þessu námskeiði lærir þú að bjarga þér á ferðalagi í frönskumælandi löndum.

Markmið námskeiðsins væri að læra hvernig á að komast af í Frakklandi sem ferðamaður og byrjandi: spyrja um leið, gera lítil innkaup í verslunum, bóka hótelherbergi, panta á veitingastaði, geta átt grunnsamtal o.s.frv.

Kennsluefni

  • Við biðjum nemendurna að koma með skriffæri.

Styrkir til náms og greisðlur

Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.

Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða í heimabanka.

  • DAGSETNING: frá 25. janúar til og með 14. mars 2024 (16 klst. – 8 vikur)
    tími til að vinna upp 21. mars 2024
  • TÍMASETNING: fimmtudaga kl. 18:15-20:15
  • VERÐ: 38.800 kr. (35.800 kr. fyrir 7. janúar 2024)
  • VERÐ MEÐ AFSLÆTTI*: 35.800 kr. (32.800 kr. fyrir 7. janúar 2024)
    *
    skráningarskilmálar hér.