Námskeið 1 í Cycle 3 hefur það markmið að bæta kunnáttu Cycle 2 til að lesa og skrifa frönsku. Nemendurnir ná sjálfstæðum tökum á tungumálinu. Þetta stig er til að efla kunnáttu í skrift og lestri.

Nemendur læra sjálfstætt að lesa texta. Þeir æfa sig á að lesa hátt og skýrt og líka í hljóði. Þeir læra að skrifa greinargóða og vel uppbyggða texta, að skrifa skýrt með réttri starfsetningu og réttri málfræði í frönsku. Þeir læra að greina tungumálið til þess að geta bætt við kunnáttu sína í málfræði, beygingu sagna og stafsetningu.

Á þessu námskeiði er boðið upp á að lesa og greina sígildar bókmenntir.

Að loknu námskeiðinu stendur nemendum til boða að taka DELF Prim A2 eða DELF Junior A2 prófin.

Ein klukkustund í hverri viku (35 vikur).

Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið. Hámark: 6 nemendur.

Frestun og forföll

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annanna.

Styrkir

Munið að athuga með námsskeiðsstyrki hjá Reykjavíkurborg og Kópavogi.

Skóladagatal

  • DAGSETNING: frá 9. september 2020 til 2. júní 2021
  • TÍMASETNING: ​miðvikudaga kl. 15:30 – 16:30
  • VERÐ: 65.630 kr. (62.344 kr. fyrir 31. ágúst 2020)
essai1

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
Cq9J1WfVUAAglhb

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
ONU6RW0

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
Education-OpportunitySmall

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar