Almennt frönskunámskeið – Fær notandi 1

Námskeiðið C1 gefur nemendum tækifæri á að rifja upp og að læra nýja þekkingu: tileinka sér nýungar, að fjalla um samfélagsleg málefni, að tala um borgarskipulag, að ræða um deilumál, að nota óformlegt mál o.s.fv.

Námskeiðið fer fram í tvo klukkutíma tvisvar í hverri viku.

8 vikur af námskeiðum (32 klst.)

Staðnám með fjarkennsku í beinni útsendingu

Býrð þú fyrir utan höfuðborgarsvæðið? Ertu oft á ferðalagi? Ertu í sóttkví? Er óveður? Viltu frekar læra heima? Í dag skiptir sveigjanleiki í námi miklu máli. Við bjóðum nú upp á nýja lausn sem gefur nemendum kost á að taka þátt í frönskunámskeiði hvar sem þeir eru. Nemendur geta nú valið á milli tveggja valkosta fyrir hvern tíma í námskeiðinu: að læra á staðnum eða að vera í fjarkennslu í beinni. Frekari upplýsingar hér.

Kennsluefni

    • Kennslubók: Défi 5 lesbók og æfingabók (kaflar 1 og 2)
      • Bækurnar eru ekki innifaldar.
      • Hægt er að kaupa þær hjá okkur (lesbók: 4.900 kr. / æfingabók: 3.400 kr.)
      • Défi 5 er notuð fyrir allar fimm annirnar sem tekur að klára C1.
      • Hægt er að fá bækurnar með bréfpósti með aukagjaldi (vinsamlegast hafðu samband ef þú vilt fá þær sendar)
    • Skriffæri (staðnám)
    • Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur (fjarkennsla í beinni)

Frestun og viðurkenning

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
  • Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.

Styrkir til náms og greiðslur

    • Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
    • Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða í heimabanka.

Dagatal

calendrier_adultes_2024-2025
  • DAGSETNING: frá 25. mars til og með 28. maí 2025
    tímar til að vinna upp frá 2. til og með 6. júní 2025
    engir tímar frá 12. til og með 21. apríl, 24. apríl og 1. maí
  • TÍMASETNING: þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18:15-20:15
  • ALMENNT VERÐ: 81.500 kr. (78.500 kr. fyrir 14. mars 2025)
  • VERÐ MEÐ AFSLÆTTI*: 78.500 kr. (75.500 kr. fyrir 14. mars 2025)
    *
    skráningarskilmálar hér.

Skráning

    Við biðjum þig að fyrirframgreiða 10.000 kr. til þess að staðfesta skráninguna. Greiðsluupplýsingar verða sendar með tölvupósti. Við endurgreiðum þér ef við getum ekki opnað námskeiðið.


    essai1

    Af hverju franska?

    Vídeó, Röksemd
    Cq9J1WfVUAAglhb

    Stöðupróf

    Hvernig á að skrá sig?
    ONU6RW0

    Gerast félagi

    Bókasafn, Culturethèque
    Education-OpportunitySmall

    Próf

    DELF-DALF, TCF
    conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

    Skilmálar

    Almennir skilmálar