Sýning bíómyndarinnar „Litla Land“

  • Staðsetning: Bíó Paradís
  • Dagsetning og tímasetning: föstudagur 12. febrúar, kl. 18

ATH. Fleiri sýningar eru líka í boði aðra daga.

Drama með enskum texta. 2020, 111 mín.
Leikarar: Jean-Paul Rouve, Isabelle Kabano, Djibril Vancoppenolle.

KAUPA MIÐA Í BÍÓ PARADÍS

Bókaspjall um „Litla Land“ með Rannveigu Sigurgeirsdóttur sem íslenskaði bókina og með fulltrúum forlagsins Angústúru

  • Staðsetning: Alliance Française í Reykjavík
  • Dagsetning og tímasetning: föstudagur 12. febrúar, kl. 20:30
  • Léttvínsglas í boði
  • Ókeypis

Myndin „Litla Land“ er byggð á skáldsögu tónlistarmannsins Gaëls Faye og endurspeglar uppvöxt hans í Búrúndí. Rannveig Sigurgeirsdóttir þýddi bókina á íslensku og Angústúra gaf hana út í fyrra. Rannveig ásamt Maríu Rán Guðjónsdóttur og Þorgerði Öglu Magnústdóttur frá Angústúru bjóða upp á bókaspjall í Alliance Française í Reykjavík, Tryggvagötu 8, kl. 20:30 eftir sýninguna í Bíó Paradís. Ásta Ingibjartsdóttir, frönskukennari í Háskóla Íslands, les nokkra útdrætti úr bókinni.

Íslensk útgafa skáldsögunnar „Litla Land“ fékk útgáfustyrk frá Institut Français.

Bókaspjallið verður einnig í boði í beinni útsendingu í gegnum Zoom. Við sendum þátttakendunum aðganginn með tölvupósti.

Vegna sóttvarnarreglna er takmarkað pláss á viðburðinn á staðnum.

Rannveig Sigurgeirsdóttir stundaði nám í frönsku og málvísindum í Lausanne í Sviss og bjó síðar og starfaði í Frakklandi. Hún hefur starfað við skrifstofustörf og bókhald en einnig hefur hún fengist við þýðingar og túlkun úr frönsku og ensku. Hún var aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Alliance française í 5 ár. „Litla Land“ er fyrsta útgefna bókmenntaþýðing Rannveigar.

SKRÁNING (Á STAÐNUM)
SKRÁNING (Á ZOOM)

Litla Land / Petit Pays

eftir Eric Barbier

Drama með enskum texta.
2020, 111 mín.

Leikarar: Jean-Paul Rouve, Isabelle Kabano, Djibril Vancoppenolle.

Gabríel er tíu ára og lifir áhyggjulausu lífi í úthverfi Bújúmbúra, í Afríkuríkinu Búrúndí. Allt hverfist um vinina og þeirra uppátæki í botnlanganum sem þeir hafa gert að ríki sínu. En þegar borgarastríð skellur á í landinu, og þjóðarmorð er framið í nágrannaríkinu Rúanda, breytist allt. Falleg saga um vináttu og sakleysi æskunnar, en líka átakanlegur vitnisburður um þau eyðandi áhrif sem stríð og ofbeldi hafa á líf og samfélög manna. Myndin er byggð á skáldsögu tónlistarmannsins Gaëls Faye og endurspeglar uppvöxt hans í Búrúndí. Bókin var þýdd á íslensku.

SÝNINGARTÍMAR OG MIÐASALA
TIL BAKA