„Amour à mort“

Alliance Française í Reykjavík býður upp á sýningu heimildarmyndarinnar „Amour à mort“ (að elska til dauða) eftir Éric Guéret með enskum texta (78 mín).

Ágrip

Myndin er um sjö konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi og komist út úr því. Sjö líf og sjö sögur af þrautseigju. Þær lýsa hvernig einangrun, þöggun, niðurlæging og skömm hélt þeim föstum. Þær segja frá því hvernig ofbeldið snerti þær og börn þeirra og tala til þeirra sem eru enn í viðjum ofbeldis og gefa þeim von um að komast úr þessum aðstæðum og út úr þögninni. Þegar þögnin er rofin þá hörfar ofbeldið.

Aude Vincent, ein kvennana sem eru í myndinni verður viðstödd spurningar og svör eftir myndina. 

  • föstudagur 18. nóvember 2022
  • kl. 19:30
  • Ókeypis