Almennt frönskunámskeið – Sjálfbjarga á tungumálinu 1

Námskeiðið B1.1 er í beinu framhaldi af A2 og gefur nemendum tækifæri á að rifja upp lágmarkskunnáttu á frönsku og að læra nýja þekkingu eins og að tala um ástarsamband og vináttu, að tala um klisjur og um vinunna sína, að greina frá afleiðingum.

Námskeiðið fer fram í tvo klukkutíma tvisvar í hverri viku (32 klst.)

Staðnám með fjarkennsku í beinni útsendingu

Býrð þú fyrir utan höfuðborgarsvæðið? Ertu oft á ferðalagi? Er óveður? Viltu frekar læra heima? Í dag skiptir sveigjanleiki í námi miklu máli. Við bjóðum nú upp á nýja lausn sem gefur nemendum kost á að taka þátt í frönskunámskeiði hvar sem þeir eru. Nemendur geta nú valið á milli tveggja valkosta fyrir hvern tíma í námskeiðinu: að læra á staðnum eða að vera í fjarkennslu í beinni. Frekari upplýsingar hér.

Kennsluefni

    • Kennslubók: L’Atelier B1 lesbók og æfingabók (kaflar 0, 1, 2 og 3)
      • Bækurnar eru ekki innifaldar.
      • L’Atelier B1 er notuð fyrir allar fjórar annirnar sem tekur að klára B1.
      • Hægt er að kaupa þær hjá okkur (lesbók: 4.800 kr. / æfingabók: 3.400 kr.)
      • Hægt er að fá bækurnar með bréfpósti með aukagjaldi (vinsamlegast hafðu samband ef þú vilt fá þær sendar)
    • Skriffæri (staðnám)
    • Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur (fjarkennsla í beinni)

Frestun og viðurkenning

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
  • Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.

Styrkir til náms og greiðslur

    • Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
    • Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða í heimabanka.

Dagatal

calendrier_adultes_2024-2025
  • DAGSETNING: frá 24. mars til og með 26. maí 2025
    tímar til að vinna upp frá 2. til og með 6. júní 2025
    engir tímar frá 12. til og með 21. apríl
  • TÍMASETNING: mánudaga og miðvikudaga kl. 18:15-20:15
  • ALMENNT VERÐ: 81.500 kr. (78.500 kr. fyrir 14. mars 2025)
  • VERÐ MEÐ AFSLÆTTI*: 78.500 kr. (75.500 kr. fyrir 14. mars 2025)
    *
    skráningarskilmálar hér.

Skráning

    Við biðjum þig að fyrirframgreiða 10.000 kr. til þess að staðfesta skráninguna. Greiðsluupplýsingar verða sendar með tölvupósti. Við endurgreiðum þér ef við getum ekki opnað námskeiðið.


    essai1

    Af hverju franska?

    Vídeó, Röksemd
    Cq9J1WfVUAAglhb

    Stöðupróf

    Hvernig á að skrá sig?
    ONU6RW0

    Gerast félagi

    Bókasafn, Culturethèque
    Education-OpportunitySmall

    Próf

    DELF-DALF, TCF
    conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

    Skilmálar

    Almennir skilmálar