Bakstur á frönsku
Með því að elda ljúffengar uppskriftir læra börnin orðaforða yfir hráefni og aðgerðir í eldhúsinu… og fara heim með fullt af sætindum til að deila!
Dagsetningar og tímasetningar
Vinnustofur fara fram frá 9:00 til hádegis daglega.
Það stendur líka til boða að borða nesti milli hádegis og 13:00 og horfa svo á bíómynd eða fara út ef veðrið leyfir til 14:30.
Upplýsingar
-
- Aldur: 6 til 10 ára
- Lágmark og hámark þátttakenda : 4 til 8 þátttakendur
- Smá hressing verður í boði en börnin þurfa að koma með hádegisnesti ef þau borða í Alliance í hádeginu.
- Það er ekki skylda að kunna frönsku til að taka þátt. Markmiðið er að uppgötva tungumál í skemmtilegu umhverfi.