Í tengslum við Hátíð franskrar tungu 2020 munu franska sendiráðið, Alliance Française í Reykjavík og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur kynna þrjár afrískar stórmyndir sem gerast á okkar dögum. Myndirnar verða allar sýndar í Veröld með atbeina Institut Français.
Fyrsta myndin er Timbúktú eftir Abderrhamane Sissakó.
Kidane er bóndi af þjóð Túarega og býr í eyðimörkinni með konu sinni og dóttur. Til að byrja með eru þau látin í friði en fyrr en varir standa þau frammi fyrir nýjum íslömskum lögum, eftir útistöður við annan íbúa.
-
- Myndin hlaut dómaraverðlaunin í Cannes, Césarverðlaunin sem besta myndin og fyrir bestu leikstjórn og New York Times setti hana í 12. sæti yfir bestu kvikmyndir 21. aldar, það sem af er.
- Myndin er á frönsku, arabísku, bambara og tamasheq en sýnd með enskum texta.
- Lengd : 97 mínútur.
- Allir velkomnir.