Komdu og taktu þátt í skemmtilegri og skapandi smiðju þar sem við búum til skordýr úr endurunnum plast- og pappírsefnum! Þetta er einstakt tækifæri til að æfa frönsku á meðan við þjálfum ímyndunaraflið og lærum um umhverfisvernd.

Þátttakendur munu útbúa skordýrin með listakonunni Estelle Pollaert.

Hægt er að láta börnin koma með nesti, borða á staðnum og horfa á teiknimynd kl. 13-14:30 (valkvætt og frítt).

Markmið

  • Hvetja börnin til að endurvinna efni.
  • Þrívíddargerð hluta.
  • Notkun vísindalegs orðaforða á frönsku.

Upplýsingar

    • Aldur: 7 til 13 ára
    • Lágmark og hámark þátttakenda : 4 til 8 þátttakendur
    • Smá hressing verður í boði en börnin þurfa að koma með hádegisnesti ef þau horfa á teiknimyndina kl. 13.
    • Það er ekki skylda að vera frönskumælandi til að taka þátt. Smiðjan fer fram á frönsku en hægt er að þýða handa börnunum sem kunna ekki frönsku.
  • DAGSETNINGAR: föstudaginn 28. febrúar kl. 9:30-12:30
  • VERÐ: Ein smiðja 9.450 kr. / Tvær smiðjur 16.055 kr. (10% afsláttur) / Þrjár smiðjur 22.680 kr. (15% afsláttur) / Fjórar smiðjur 28.350 kr. (20% afsláttur) / Fimm smiðjur 33.075 kr. (25% afsláttur)
SKRÁNING