Listasmiðja í Vesturbæjarlaug og í vatninu sjálfu.

„Inni í landslaginu: goðsagnir, töfrar og hefðir í vatninu“

með listakonunni Beatrice Celli

Ítalska og frönskumælandi listakonan Beatrice Celli, í búsetu á Íslandi, með stuðningi franska sendiráðsins og Alliance Française í Reykjavík í samvinnu við Dos Mares, býður upp á listasmiðju í Vesturbæjarlaug þriðjudaginn 24. september klukkan 13:30.

Listasmiðjan er fyrir hámark 5 manns. Þátttakendur skapa JÓGALIST í vatni. Listakonan mun bjóða þátttakendum að gera öndunaræfingar og mála minningar með vatnslitum (kennsluefni innifalið). Hún mun einnig útskýra lífsferilinn sinn og nálgun sína.

    • þriðjudaginn 24. september 2024, kl. 13:30-14:30
    • í Vesturbæjarlaug
    • Koma með sundskýlu/sundbol og handklæði.
    • Ókeypis viðburður á ensku.

Vefsíða listakonunnar Beatrice Celli