Stuttmyndakvöld á verðlaunahátíð Sólveigar Anspach 28. september kl. 16:30 – RIFF.

Dómnefnd, undir forsæti Veru Sölvadóttur, valdi sex bestu stuttmyndirnar 2023, þrjár á íslensku og þrjár á frönsku. Allar sex myndirnar verða sýndar í röð og að því loknu verður verðlaunaathöfn.
    • Fár – Gunnur Martinsdóttir Schlüter
    • Chasing Bird – Una Lorenzen
    • Allt um kring – Birna Ketilsdóttir Schram
    • Ditch – Nellie Carrier
    • Madeleine – Raquel Sancinetti
    • Marée Haute – Noha Choukrallah

Franska sendiráðið á Íslandi og Alliance Française í Reykjavík efndu til Sólveigar Anspach verðlaunanna með stuðningi Reykjavíkurborgar, Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og RIFF. Tilgangurinn var að heiðra minningu Sólveigar Anspach og hvetja ungar konur til dáða í kvikmyndaleikstjórn. Verðlaunin eru veitt konum fyrir fyrstu stuttmynd þeirra á frönsku og íslensku, tungumálunum hennar Sólveigar.

Frekari upplýsingar

  • Viðburðurinn er opinn öllum og kostar ekkert inn en það þarf að skrá sig.
  • Léttar veitingar verða í boði að verðlaundaafhendingu lokinni.
  • Laugardagur 28. september kl. 16:30
  • Háskólabíó