Alliance Française býður upp á tónlistarstund á frönsku fyrir yngstu börnin (frá 0 til 5 ára) í tilefni af 30 ára afmælis Samtakana Móðurmáls .

Næstkomandi laugardag 1. júní kl. 12-14 stendur félagið Móðurmál fyrir veislu í tilefni af 30 ára afmælinu sínu!

Af þessu tilefni mun Alliance Française bjóða upp á tónlistarstund á frönsku með Antoine kl. 13. Verið þið velkomin að syngja barnavísur á frönsku með okkur!

Á dagskránni:

    • Afmæliskaka, pylsur, kleinur og fleira
    • Lifandi tónlist (Múltíkúltíkórinn & Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts)
    • Götuleikir, hoppukastali, krítarkrot, photobooth (fótóbúþ), andlitsmálning og margt fleira
    • Saga Móðurmáls & skemmtilegar minningar úr 30 ára starfi.

Viðburðurinn verður í Mjódd.