Lotunámskeið A1.2

Þetta námskeið býður upp á 12 klst. frönskukennslu í 6 skipti til þess að rifja upp og bæta frönskukunnáttu sína á skömmum tíma.

Á þessu lotunámskeiði verður farið yfir grunnatriði franskrar tungu í gegnum skemmtileg verkefni sem hvetja þátttakendur til að tjá sig munnlega.

Í lok þessa námskeiðs verður maður tilbúinn til að fara í námskeiðið A1.3 sem verður í boði næsta haust.

ATH. Þetta námskeið er ekki ætlað þeim sem hafa aldrei lært frönsku áður.

Markmið

  • bæta frönskukunnáttu sína á stuttum tíma
  • bæta sig í talmáli
  • kynna sig og tala um vinnuna sína
  • tala um áhugamál, ferðalög
  • tala um mat
  • tala um ætlanir í nálægri framtíð
  • tala um föt
  • tala um staði og vísa til vegar
  • smá kynning á samsettri þátíð

Kennsluefni

  • Við biðjum nemendurna að koma með skriffæri.

Styrkir til náms og greisðlur

Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.

Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða í heimabanka.

  • DAGSETNING: á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum frá 6. til og með 21. maí 2024 (engin kennsla 9. og 21. maí)
  • TÍMASETNING: ​kl. 18:15-20:15
  • VERÐ: 29.000 kr.