Bíókvöld „Les jours heureux“ eftir Chloé Robichaud

Hefur þú einhvern tíma séð glæsilega bláa kvikmyndaherbergið hjá Önnu Jónu? Við bjóðum ykkur að uppgötva þennan stórkostlega veitingastað og kvikmyndahús í tilefni af bíókvöldi.

Alliance Française býður, í samstarfi við Önnu Jónu og sendiráð Kanada á Íslandi, upp á sýningu bíómyndarinnar „Les jours heureux – Days of Happiness“ eftir Chloé Robichaud með enskum texta (118 mín).

Þessi viðburður er í boði í tilefni af Degi kanadískra kvikmynda.

Hugo spritz kokteillinn á sértöku verði í tilefni af sýningunni (í takmörkuðu magni).

Ágrip

  • Smá kynning á ensku verður í boði fyrir sýninguna
  • miðvikudaginn 17. apríl 2024
  • kl. 20:30
  • Anna Jóna (Bláa herbergið)