Vinnustofan „Franska í gegnum tölvuleiki“ er ætluð börnum 12 ára og eldri sem vilja bæta og dýpka frönskukunnáttu sína í gegnum úrval tölvuleikja með frönsku viðmóti. Tölvuleikirnir sem Héloïse valdi eru annaðhvort sígildir eða nýir sem leggja áherslu á sköpunargáfu og samvinnu þátttakenda. Hugmyndin með þessari vinnustofu er ekki að vera óvirkur fyrir framan skjá heldur frekar að leysa ráðgátur í teymi (fyrir suma leiki í sama herbergi og fyrir aðra í mismunandi herbergjum), byggja sýndarheima og tala saman á frönsku.

Markmið

    • að efla talfærni
    • að efla frönskukunnáttu sína í skapandi aðstæðum
    • að læra að leysa ráðgátur í teymi
    • að læra nýjan orðaforða sem tengist ýmsum þemum

Fyrirhugaðir tölvuleikir

Valið á leikjum er ekki enn opinbert og gæti breyst eftir einkennum þátttakenda.

    • Pyjama Sam
    • SpyFox
    • Les sims (2,4)
    • Codenames
    • Le jeu de la vie 2
    • We were here
    • Keep talking and nobody explodes
    • PowerZ
    • L’amazone queen

Upplýsingar

    • Vinnustofan er ætluð nemendunum frá 12 ára aldri.
    • Allir velkomnir. Það er ekki skilyrði að kunna frönsku til að taka þátt í þessari vinnustofu.
    • Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna vinnustofuna. Hámark: 8 nemendur.
    • 9 skipti.
  • DAGSETNINGAR: frá 29. september til og með 8. desember 2023 (hlé 27. október og 3. nóvember).
  • DAGS- OG TÍMASETNINGAR: föstudaga kl. 15:45-17:45
  • VERÐ: 37.800 kr. (36.000 kr. fyrir 16. ágúst 2023)
    Systkinaafsláttur: séu 2 systkini eða fleiri að taka frönskunámskeið reiknast 5% afsláttur af gjöldum barna eftir að fyrsta barn er skráð.
SKRÁNING