Kakó frá Fílabeinsströndinni - Kynning og smökkun með Axel Emmanuel Gbaou

Í tilefni af hátíð franskrar tungu 2023 bjóða Alliance Française í Reykjavík og franska sendiráðið á Íslandi súkkulaðiframleiðandann Axel Emmanuel Gbaou frá Fílabeinsströndinni að ræða við okkur um kakó og leyfa okkur að smakka vörurnar hans.

Kvöldið hefst með 25/30 mínútna kynningu um framtíð kakósins. Síðan mun Axel Emmanuel svara spurningum þátttakenda og bjóða upp á að smakka súkkulaði.

Frekari upplýsingar

    • Ókeypis
    • Allir velkomnir en skráning nauðsynleg
    • Viðburður á frönsku
    • Staðsetning: Alliance Française í Reykjavík, Tryggvagötu 8.
    • föstudaginn 24. mars 2023 kl. 18