Ljóðakvöld "Það sem hverfur" með Aðalsteini Ásberg Sigurðssyni og Gérard Lemarquis

Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Gérard Lemarquis munu lesa upp ljóð úr bókinni „Ce qui disparaît“ sem Dimma gaf út árið 2022, frönsk þýðing Gérard á „Það sem hverfur“ eftir Aðalstein Ásberg.

Fyrst verður lesið upp á íslensku og svo á frönsku.

Einnig verður boðið upp á millispil (söngur og gítar) með Þorgerði Ásu.

    • Boðið verður upp á léttvínsglas eftir upplesturinn.
    • Bókin „Ce qui disparaît“ verður til sölu á sérstöku verði.
    • Lengd: 1 klst.
    • Verð: ókeypis
    • Hámarksfjöldi þátttakenda: 45
  • Alliance Française, Tryggvagötu 8, 2. hæð.