The Five Devils

eftir Léa Mysius

Tegund: Drama, Fantasía, Rómantík
Tungumál: Franska með enskum texta
2022, 103 mín.

Aðalhlutverk: Adèle Exarchopoulos, Swala Emati, Sally Dramé

Vicky er ung stúlka sem býr með foreldrum sínum. Þegar föðursystir hennar kemur inn á heimilið eftir fangelsisdvöl breytist allt og óútskýrðir hlutir eiga sér stað þar sem fortíðin er dregin fram í dagsljósið á ofbeldisfullan hátt.

Adèle Exarchopoulos (Blue Is the Warmest Color) á stórleik í þessari dramatísku og dularfullu kvikmynd sem frumsýnd var á kvikmyndahátíðinni Cannes 2022.

SÝNINGARTÍMAR OG MIÐASALA
TIL BAKA