Nú er opið fyrir skráningar í stuttmyndakeppni Sólveigar Anspach 2023

Lokað verður fyrir skráningar þann 16. október 2022

Sólveigar Anspach samkeppnin er opin stuttmyndum sem konur hafa leikstýrt. Keppnin er samvinna á milli Frönsku kvikmyndahátíðarinnar og RVK Feminist Film Festival.

 

Skilyrði fyrir þátttöku eru eftirfarandi:

    • að leikstjóri stuttmyndarinnar sé kona, með ríkisfang eða búsetu í frönskumælandi landi, eða sé íslensk eða búsett á Íslandi og hún hafi ekki haft framleiðslufyrirtæki á bak við sig í fleiri en þremur myndum.
    • að myndin sé að hámarki 20 mínútna löng, að meðtöldum kreditlistum. Öllum myndum, sem fara fram yfir þessi mörk, verður umyrðalaust hafnað.
    • að lokið hafi verið við myndina eftir 1. janúar 2020.
    • að myndin sé á frönsku eða íslensku.
    • að myndin sé með enskum texta.
    • að myndin hafi verið skráð til keppni fyrir 16. október 2022 kl. 23:00 UTC samkvæmt skilyrðum sem tilgreind eru í 3. lið.
    • að myndin sé á VIMEO formi eingöngu.
UMSÓKN
REGLUR

Dómnefnin afhendir tvö verðlaun, ein fyrir bestu stuttmyndina á frönsku og ein fyrir bestu stuttmyndina á íslensku.

Stuttmyndirnar, sem dómnefnd velur, verða sýndar á sérstakri kvöldvöku í Reykjavík (á Íslandi) sem hluti af RVK Feminist Film Festival í janúar 2023 og í Pantin í júní 2023 (í Frakklandi) sem hluti af stuttmyndahátíðinni Côté Court.

Sendiráð Íslands í París býður íslenska leikstjóranum, sem hlýtur verðlaunin, til Frakklands til þess að kynna mynd sína á stuttmyndahátíðinni Côté Court í Pantin.

Netfang: sashortfilms@af.is