Vantar þig vitamín D? Ferðastu á eyju fegurðar í haust!

Skoðaðu Korsíku í 9 daga (8 nætur) til að uppgötva lífræna og staðbundna menningu og matargerð eyjunnar. Hópferð ferð með nætur í Bastia, Calvi, Ajaccio og Porto-Vecchio.
Frönskumælandi og íslenskumælandi leiðsögumaður.
  • 15. til og með 23. október 2022
  • Frekari upplýsingar: insulaserena@gmail.com eða 8537778

370.000 kr. fyrir utan flug

Aukagjald fyrir einsmanns herbergi er 40.000 kr.

  • gisting á 3 stjörnu hótelum með morgunmat (aukagjald fyrir einsmanns herbergi er 40.000 kr.).
  • ferða til og frá flugvelli/hóteli á komu og brottfaradegi.
  • rúta með loftkælingu daga 2 til 8 samkvæmt prógrammi.
  • Hádegismatur daga 2, 3, 6 og 8.
  • Kvöldmatur dagur 1.
  • Leiðsögn í Bastia, Cap Corse, Matjurta vinnustofa.
  • Smálest í Corte.
  • Bátsferð í Bonifacio.
  • kvöldmatur (fyrir utan dag 1).
  • hádegismatur daga 4, 5, 7.

Dagur 1

  • Flug til Bastia. Leiðsögn á frönsku í gegnum bæinn, fræðandi, söguleg og fyndin, sem endar með tónleikum og smakk af korsíkönskum mat.
  • Hótelgisting í Bastia.

Dagur 2

  • Ferð til Cap Corse.
  • Heimsókn til Belvedere myllunar hans Mattei sem bjó til aperitif Mattei.
  • Macinaggio höfnin skoðuð, sögulegur staður, þar sem Napoleon og Eugenia imperatrice komu til Korsíku.
  • Sisco og Lavasina þorpin skoðuð. Pílagrímar koma til Lavansina 8 sept. ár hvert, vegna
  • heilagrar Maríu.
  • Hótelgisting í Bastia.

Dagur 3

  • Route des Agriates.
  • Við keyrum til vesturs, í áttina að Balagne héraði, og skoðum þorpin Corbara og Pigna, þar sem við stoppum í hádegismat og hittumst matreiðslumeistarann og með handverksfólk af svæðinu.
  • Þaðan förum við að skoða San Antonio sem fékk viðurkenningu sem eitt af fallegustu þorpum landsins.
  • Hótelgisting í Calvi.

Dagur 4

  • Frí dagur fyrir hádegi í Calvi.
  • Eftir hádegi vinnustofa þar sem kynntar eru matjurtir úr héraðinu og hvernig þær eru notaðar í matargerð.
  • Hótelgisting í Calvi.

Dagur 5

  • Morgninum eytt í Corté, fyrrverandi höfuðborg Korsíku, og núverandi háskólabæ.
  • Frí dagur fyrir hádegi.
  • Eftir hádegi keyrum við suður í gegnum fjöllin í áttina að Ajaccio.
  • Hótelgisting í Ajaccio.

Dagur 6

  • Eftir hádegi, frí tími í Ajaccio.
  • Hádegismatur á veitingahúsinu A Nepita, og hittingur með matreiðslumeistaranum Símon Andrews, sem kom til Íslands síðasta ár og var með matarkynningu í Alliance Francaise.
  • Leiðsögn í gegnum borgina. Hús Napoleons og Tino Rossi söngvara skoðuð, Palais Fes skoðuð.
  • Hótelgisting í Ajaccio.

Dagur 7

  • Tökum stefnuna beint suður til Bonifacio.
  • Bonifacio er þekkt fyrir ljósbláan sjó og höfnina sem var fræg í fornri tíð, sem örugg og vel varin höfn.
  • Farið í siglingu til að skoða hvítu kletta Bonifacio og ef veður leyfir, verður ferðin lengd og farið til Lavezzi eyjar.
  • Frjálst hádegi.
  • Valmöguleiki á að fá leiðsögn um borgina eftir hádegi.
  • Hótelgisting á svæðinu.

Dagur 8

  • Förum aftur til norðurs eftir „Austursléttunni“ í gegnum Porto Vecchio.
  • Hádegismatur á veitingastaðnum Étang de Diana.
  • Hótelgisting í Aleria.

Dagur 9

  • Ferð til Bastia flugvallar og flug heim.