Í tilefni af hátíð franskrar tungu 2022 bjóða Alliance Française upp á vinnustofuna „föndraðu kind fyrir mig“ í samstarfi við sendiráð Frakklands á Íslandi.

Hver hefur aldrei lesið setninguna „Teiknaðu kind fyrir mig” í bókinni “Litli prinsinn“? Sýningin „Litli prinsinn: saga um vináttu“ í Alliance Française stendur til 26. mars. Af þessu tilefni býður Séverine Pech börnum á aldrinum 6 til 9 ára að föndra kind úr íslenskri ull.

Upplýsingar

    • Vinnustofan er ætluð börnum á aldrinum 6 til 9 ára.
    • Það þarf að minnsta kosti fjóra þátttakendur til að opna vinnustofuna. Hámark: 8 þátttakendur.

Leiðbeinandi

Séverine Pech

  • DAGSETNINGAR: laugardaginn 26. mars 2022, kl. 14:30-15:30
  • VERÐ: 1.500 kr.

    Ókeypis fyrir meðlimi Alliance Française í Reykjavík (með félagsskírteini sem er ekki útrunnið)

SKRÁNING