Engin sæti laus til september 2022

La maternelle 1 er ætlað börnum frá 3 ára til 4 ára aldurs. Það er stig til þess að þroska talmál.

Þetta námskeið hefur það markmið að efla og að auðga frönsku í talmáli með því að bjóða upp á skemmtileg verkefni og æfingar fyrir ung börn: tónlist, leikir, sögur o.s.frv. Börnin læra nýjan orðaforða og formgerð tungumálsins á meðan þau leika sér með því að gera skemmtileg og þroskandi verkefni ásamt skemmtilegum þemum fyrir ung börn: sögustundir, listir, náttúra, dýralíf, líkami o.s.frv.

    • Lengd tímana: 60 mín í hverri viku (30 vikur á skólaárinu 2021-2022).
    • Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið. Hámark: 8 nemendur.
    • Viðurvist forráðamanns nauðsynleg í bókasafninu á meðan kennslan stendur.
    • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annanna.

Skóladagatal

calendrieradultes
  • DAGSETNING: frá 9. september 2021 til 19. maí 2022
  • TÍMASETNING: fimmtudaga kl. 17-18
  • VERÐ: 57.000 kr. (54.000 kr. fyrir 22. ágúst 2021)
    3.000 kr. afsláttur af gjaldi annars, þriðja og fleiri systkina. Þetta tilboð er ætlað börnum og unglingum.

craysonsenfants

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
testenfant

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
biblioenfant

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
delfenfants

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar