Marokkóskt kvöld í tilefni af útgáfu bókarinnar „Í landi annarra“ eftir Leïla Slimani

    • Staðsetning: Alliance Française í Reykjavík
    • Dagsetning og tímasetning: miðvikudagur 26. maí, kl. 20:30
    • Marokkóskt þema: kökur, te og tónlist
    • Ókeypis viðburður / Allir velkomnir / Skráning nauðsynleg

Í tilefni af hátíð franskrar tungu 2021, í samstarfi við sendiráð Frakklands á Íslandi og Forlagið bjóða Alliance Française í Reykjavík og félag kvenna frá Marokkó á Íslandi upp á marokkóskt kvöld í tilefni af útgáfu bókarinnar „Í landi annarra“ eftir Leïla Slimani sem Friðrik Rafnsson þýddi á íslensku.

    • Fulltrúi Forlagsins og Friðrik Rafnsson kynna bókina, tala um þýðingarverkið á íslensku og lesa upp úr bókinni á íslensku og á frönsku. Að lokinni kynningu verður hægt að spyrja spurningar á íslensku, frönsku og ensku.
    • Félag kvenna frá Marokkó á Íslandi býður upp á marokkóskt te og marokkóskar kökur.
    • Thabit, tónlistarmaður, spilar „oud“ lútu.

„Í landi annarra“ er síðasta bók eftir Leïla Slimani. Hún hlaut Goncourt verðlaunin 2016 fyrir bókina „Barnagæslu“.

Vegna mögulegra sóttvarnarreglna gæti verið takmarkað pláss á viðburðinn á staðnum. Vinsamlega skráið ykkur fyrirfram fyrir neðan.

SKRÁNING NAUÐSYNLEG