Alliance Française í Reykjavík og félagið Reykjavík Accueil bjóða upp á vísindavinnustofu á frönsku fyrir 3 til 6 ára börn. Þemað er „Skilningarvitin fimm“.

Í þessari vinnustofu uppgötva börnin skilningarvitin fimm í gegnum skemmtilega skynjaleiki.

Upplýsingar

    • Vinnustofan er ætluð nemendunum frá 3 til 6 ára.
    • Nemendur þurfa að skilja frönsku til að geta fylgst með vel.
    • Það þarf að minnsta kosti fjóra þátttakendur til að opna vinnustofuna. Hámark: 10 þátttakendur.
    • Forráðamenn 3 til 4 ára barna þurfa að bíða í húsakynnunum.
  • DAGSETNINGAR: laugardagur 10. apríl kl. 15-16
  • VERÐ: 1.500 kr.
SKRÁNING