Almennt frönskunámskeið fyrir byrjendur – Byrjunarstig 1

Nemendur í A1.1 læra undirstöðuþætti í frönsku: að kynna sig, að tala um sig og um umhverfið sitt, að spyrja einfaldar spurningar  o.s.fv. Þetta námskeið er fyrir þá sem hafa aldrei lært frönsku áður.

  • Hraðnámskeið sem fer fram í tvo klukkutíma mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga í fjórar vikur.
  • 4 vikur af námskeiðum (32 klst.)

NÝTT - Staðnám með fjarkennsku í beinni útsendingu

Býrð þú fyrir utan höfuðborgarsvæðið? Ertu oft á ferðalagi? Ertu í sóttkví? Er óveður? Viltu frekar læra heima?
Í dag skiptir sveigjanleiki í námi miklu máli. Við bjóðum nú upp á nýja lausn sem gefur nemendum kost á að taka þátt í frönskunámskeiði hvar sem þeir eru. Nemendur geta nú valið á milli tveggja valkosta fyrir hvern tíma í námskeiðinu: að læra á staðnum eða að vera í fjarkennslu í beinni.

Frekari upplýsingar hér

Kennsluefni

  • Kennslubækur: L’Atelier A1 lesbók og æfingabók
    • Bækurnar eru ekki innifaldar. Hægt er að kaupa þær hjá okkur.
      • Lesbók: 4.499 kr.
      • Æfingabók: 2.799 kr.
    • Hægt er að fá bækurnar með bréfpósti með aukagjaldi (vinsamlegast látið okkur vita ef þið viljið fá þær sendar)
  • Skriffæri (staðnám)
  • Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur (fjarkennsla í beinni)

Frestun og viðurkenning

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
  • Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.

Styrkir til náms og greisðlur

Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða í heimabanka.
  • DAGSETNING: frá 25. maí til 15. júní 2021 – 4 vikur (32 klst.)
  • TÍMASETNING: mánudaga til fimmtudaga kl. 10-12
  • VERÐ: 65.920 kr.
  • VERÐ MEÐ AFSLÆTTI*: 62.920 kr.
    *
    skráningarskilmálar hér.