Alliance Française í Reykjavík, í samstarfi við Institut français, býður upp á rafræna sýningu heimildamyndarinnar „16 levers de soleil“ sem fylgir vísindaleiðangri geimfarans Thomas Pesquet í alþjóðlegu geimstöðinni frá 2016 til 2017. Heimildamyndin er eftir Pierre-Emmanuel Le Goff. Rafræna sýningin verður laugardaginn 28. nóvember 2020, kl. 14 með enskum texta. Eftir sýninguna verður hægt að spyrja leikstjórann Pierre-Emmanuel Le Goff spurninga á frönsku í beinni.

    • Lengd: 1 klst og 57 mín
    • Tungumál: franska með enskum texta
    • Dagsetning og tímasetning: laugardagur 28. nóvember 2020 kl. 14
    • Búnaður að hafa: tölva og gott netsamband
    • Skráning nauðsynleg fyrir 27. nóvember til að geta fengið aðgangshlekkinn
    • Þessi rafræna sýning er ókeypis
SKRÁNING

Að ferðast út í geiminn. Thomas Pesquet upplifði þennan draum sinn þegar hann fór í loftið frá Baïkonour geimferðamiðstöðinni. Hann var staðsettur í alþjóðlegu geimstöðinni í um 450 km hæð yfir jörðu í sex mánuði. Þar sem veröld okkar virðist sökkva inn alheimin urðu til einstök tengsl milli geimfarans og bókarinnar Saint Exupéry, sem hann tók með sér í geimstöðina.